Við erum vettvangur fyrir fyrirtæki í Reykjanesbæ til að vinna saman að vexti og bættu rekstrarumhverfi.

Við státum af fjölbreyttri verslun og þjónustu í Reykjanesbæ. Þú þarft sjaldnast að sækja vatnið yfir lækinn.

Verslun og þjónusta í Reykjanesbæ einkennist af persónulegri og góðri þjónustu og gæðavörum. Við höfum mörg verið hér í áratugi.

Samvinna skapar fleiri og skemmtilegri tækifæri fyrir viðskiptavininn. Fyrirtækin á svæðinu vinna vel saman og styðja hvert annað.

Betri bær eru samtök hugsuð til að styðja við, auka þekkingu og samlegð innan samtakanna. Við getum alltaf lært af nágrönnum okkar.

Með góðri samvinnu og samtali á réttum vettvangi þróum við án efa betri nálgun á það sem við erum að gera.

Makmiðið er að bjóða sambærilega vörur og þjónustu í heimabyggð. Þess vegna skiptir öllu máli að fylgjast með og stunda nýsköpun.
Tilgangur félagsins er að efla samvinnu verslunar- og þjónustufyrirtækja í Reykjanesbæ með því að auka sýnileika og upplýsa bæjarbúa um verslun og þjónustu á svæðinu
Fjölbreytt og litrík starfsemi styður hver aðra. Þannig sköpum við rekstrarumhverfi sem bæjarbúar geta borið saman við það besta í bænum. Stærðin skiptir ekki öllu máli heldur gæðin.
Fjölbreytni skiptir öllu máli svo verslun og þjónusta þrífist á svæðinu. Við viljum leggja áherslu á að hægt sé að versla sem mest í heimabyggð enda undirstaða þess að halda úti rekstri með góðu úrvali og persóunlegri þjónustu.
Hér má sjá opnunartíma verslunar og þjónustu í Reykjanesbæ.
Gjafakortin okkar eru alltaf hagkvæm gjöf. Þau hafa líka slegið í gegn.
Betri bær stendur fyrir skemmtilegum uppákomum nokkrum sinnum á ári.